Stöðumat

Stjórnendateymið fær skýra mynd af því hvar fyrirtækið stendur og hvað á að taka fyrir næst.

Mörg fyrirtæki eru þegar byrjuð að nýta gervigreind án þess að hafa heildstæða yfirsýn yfir hvar þau standa og hvert skuli stefna. Stöðumatið sýnir stöðu fyrirtækisins, metna út frá markmiðum, rekstrargrundvelli og áherslum.

Niðurstaðan er sameiginlegur skilningur stjórnenda á styrkleikum og veikleikum fyrirtækisins og á því hvaða ákvarðanir skipta mestu núna.

Vinnan felst í viðtölum við stjórnendur og lykilfólk ásamt yfirferð á þeim verkefnum og áætlunum sem þegar eru í gangi. Matinu lýkur með kynningu þar sem farið er yfir niðurstöðurnar með öllu stjórnendateyminu.

Víddirnar sjö

Matið nær yfir sjö samtengdar víddir. Hversu vel fyrirtækið er í stakk búið ræðst af því hvert það stefnir, og því er lesið í stöðuna út frá markmiðum fyrirtækisins sjálfs en ekki stöðluðum mælikvarða.

Í matinu er horft á heildina: hvernig víddirnar tengjast innbyrðis og hvað er líklegast til að standa í vegi fyrir framförum.

Nánar um víddirnar sjö →

Hindrar framfarir
Styður markmiðin
01Stefna
02Skipulag og verklag
03Mannauður og menning
04Stjórnarhættir og ábyrg notkun
05Gagnainnviðir
06Tækniinnviðir
07Framkvæmd og verðmætasköpun

Dæmi til skýringar.

Afraksturinn:

Niðurstöðurnar eru settar fram þannig að stjórnendateymið geti sjálft unnið áfram með þær. AI Stefna getur fylgt í kjölfarið þegar næsta skref er að móta stefnuna.

01Skýr mynd af stöðu fyrirtækisins í dag, metin þvert á víddirnar sjö
02Helstu styrkleikar, veikleikar, áhættur og forsendur
03Forgangsmál sem kalla á athygli stjórnenda
04Tillögur um hvað eigi að taka fyrir næst
Anna Gardarsdottir

Byrjum á samtali.

Hafa samband