AI Stefna
Stjórnendateymið mótar sameiginlega afstöðu til þess hvað gervigreind þýðir fyrir fyrirtækið, hvar hún skiptir mestu máli og hverju þarf að breyta.
Stefna um gervigreind er skýr afstaða stjórnenda: hvernig fyrirtækið ætlar að nýta gervigreind, hvar hún getur skapað raunverulegt virði, hvaða metnað fyrirtækið setur sér og hverju það er tilbúið að breyta.
Útkoman er sameiginleg stefna sem hægt er að taka ákvarðanir eftir og skýr forgangsröðun næstu skrefa.
Lykilákvarðanir í stefnumótuninni
Í stefnumótuninni þarf, eftir stöðu og metnaði fyrirtækisins, að taka skýra afstöðu til nokkurra lykilþátta:
Hvar gervigreind er orðin nauðsynleg til að standast samkeppni, hvar hún getur skapað raunverulegt forskot og hvar hún gæti ógnað núverandi viðskiptalíkani.
Hvernig gervigreindarstarfið er skipulagt, hvar ábyrgð og ákvörðunarvald liggja og hvaða leikreglur, eftirlit og áhættuvilja þarf til að auka notkun á ábyrgan hátt.
Hvernig hlutverk, verkferlar og ákvarðanataka breytast, hvaða færni fólk þarf og hvernig gervigreind verður hluti af daglegri vinnu.
Hvaða gögn þarf til að styðja við stefnuna og hvernig eignarhaldi, aðgengi, gæðum og stýringu þeirra er háttað.
Hvernig verkefnum er forgangsraðað og fjárfestingum í gervigreind stýrt sem einni meðvitaðri heild, fremur en safni ótengdra verkefna.
Hvernig árangur er skilgreindur og mældur, og hvaða gögn þarf til að sýna fram á verðmætasköpun.
Ekki þarf að útfæra alla þessa þætti í smáatriðum, en taka þarf skýra afstöðu til þess hvað skiptir máli, hverju þarf að breyta og hvað á að gera fyrst.
Hvernig vinnan fer fram
Vinnan er mótuð út frá þeim ákvörðunum sem stjórnendateymið þarf að taka. Hún getur verið hnitmiðuð vinnustofa stjórnenda eða röð vinnufunda með greiningu og undirbúningi á milli.
Umfang og afrakstur eru skilgreind í upphafi. Þegar sameiginleg mynd af stöðunni vantar getur stöðumat verið gagnlegt fyrsta skref. Annars getur stefnuvinnan hafist beint.