Ráðgjöf um gervigreind og stafræna umbreytingu

Vinnum saman að því að móta skýra stefnu og velja réttu tækifærin.

Hafa samband
Anna Gardarsdottir

Öll fyrirtæki hafa aðgang að sömu tækninni. Forskotið liggur í því sem fyrirtækið byggir í kringum hana.

Verðmætin verða til þegar vinnubrögð, ferlar og ákvarðanir breytast með tækninni og það er verkefni stjórnenda.

Tæknin heldur áfram að þróast og forskotið fá þau fyrirtæki sem læra og aðlagast jafnóðum.

Þjónustan.

Ráðgjöfin nýtist sérstaklega flóknum, þekkingardrifnum og eftirlitsskyldum fyrirtækjum, þar sem kröfur um gæði gagna, stjórnarhætti, skjölun og áhættustýringu eru hvað mestar og samvinna þvert á svið ræður miklu.

Hægt er að byrja þar sem hentar.

Stöðumat

Skýr mynd af stöðunni: hvar styrkleikarnir liggja og hvað er líklegast til að tefja árangur.

Að jafnaði tvær vikur · fast verð
Nánar →

AI Stefna

Skýr afstaða til þess hvað gervigreind þýðir fyrir fyrirtækið og vegvísir að breytingunum.

Vinnustofa stjórnenda eða röð vinnufunda
Nánar →

AI Tækifæri

Greining og forgangsröðun á gervigreindartækifærum og hvernig á að koma þeim sterkustu áfram.

Allt fyrirtækið eða eitt svið
Nánar →
Fyrirlestrar

Fyrirlestrar um gervigreind.

Erindi um gervigreind: hvað hún þýðir fyrir fyrirtæki, hvar tækifærin liggja og hverju þarf að breyta til að ná árangri.

Nánar um fyrirlestra
Anna Gardarsdottir

Um mig.

Ég vinn með stjórnendum að stefnu- og skipulagsvinnunni sem fylgir innleiðingu gervigreindar.

Bakgrunnurinn er í stærðfræðilegri líkanagerð og síðar í að leiða stefnumótandi verkefni og skipulagsbreytingar hjá Alvotech.

Brot úr ferlinum
Alvotech · 2020–2026

Leiddi innleiðingu á hugbúnaði fyrir ferlalíkön hjá vísindateymum, undirbúning fyrir framleiðsluúttekt FDA og stefnumótandi verkefni í umboði forstjóra.

Fruman Líftæknisetur · 2024–2025

Leiddi stofnun Frumunnar líftækniseturs í samstarfi við Alvotech og Háskóla Íslands. Setrið sameinar rannsóknastofur, nýsköpunarhraðal og fjárfestingarsjóð.

Trackman · 2017–2020

Þróaði reiknirit fyrir boltarakningu í Python og C++ sem notuð eru í atvinnuíþróttum.

Sjá allan feril
Anna Gardarsdottir

Hafðu samband.

Ef gervigreind er á dagskrá hjá ykkur er einfaldast að byrja á stuttu samtali.

Staðsetning
Reykjavík