Innblástur og fræðsla um gervigreind.
Hvar verðmætin verða til, hvernig störfin breytast og hvað þarf til að tæknin nýtist til fulls — fyrir stjórnendateymið jafnt og allt fyrirtækið.
Erindi sem hæfa tilefninu.
Vinnustofa stjórnenda
Hálfur dagur með stjórnendateyminu þar sem byggður er sameiginlegur skilningur á því hverju gervigreind gæti breytt fyrir reksturinn og dregnar fram spurningarnar sem stjórnendur þurfa að svara.
Fræðsluerindi
Hálfur eða heill dagur með teymi, þar sem kafað er djúpt í eitt viðfangsefni og góður tími gefst fyrir spurningar og umræður.
Viðburðir fyrirtækja
Erindi eða vinnustofa fyrir allt fyrirtækið — starfsmannafundir, teymisdagar, innri viðburðir — um hvað gervigreind þýðir fyrir dagleg störf, fyrir fólkið sem mun nota hana.
Ráðstefnuerindi
Erindi um hvað innleiðing gervigreindar krefst í raun og veru — ákvarðanirnar sem móta hana, mynstrin sem birtast þvert á fyrirtæki og hvað þau sem ná árangri gera öðruvísi.